Fótbolti

Cristiano Ronaldo í dulargervi í miðborg Madrid | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Vísir/Getty
Cristiano Ronaldo er einn allra besti og allra frægasti fótboltamaður heimsins í dag og það eru ekki margir staðir í heiminum þar sem fólk þekkir Portúgalann ekki.

Ronaldo hefur verið kosinn knattspyrnumaður ársins hjá FIFA undanfarin tvö ár og hefur skorað 313 mörk í 300 leikjum með Real Madrid í öllum keppnum.

Ronaldo hefur nú sett inn skemmtilegt myndband á fésbókarsíðu sína þar sem hann fékk að vera í friði í miðborg Madrid, heimaborgar liðs hans Real Madrid.

Cristiano Ronaldo lét reyna á það hvort að hann kæmist upp með það að sýna fótboltakúnstir á götum Madríd án þess að fólk vissi hver hann væri. Til þess þurfti hann auðvitað að skella sér í dulargervi.

Það er margt athyglisvert í myndbandinu og meðal annars neitar ein kona að gefa Cristiano Ronaldo símanúmer sitt þegar hann sóttist eftir því. Hún sér eflaust eftir því í dag.

Cristiano Ronaldo lék meðal annars í dágóða stund við ungan strák sem fékk að lokum að eiga áritaðan bolta frá honum.

Fólk var fljótt að átta sig á því hver Cristiano Ronaldo var þegar hann tók af sér dulargervið og þá voru flest allir gestir miðborgarinnar búnir að umkringja kappann.

Cristiano Ronaldo er að fara að hefja sitt sjöunda tímabil með Real Madrid en hann varð þrítugur í febrúar síðastliðnum.

Ronaldo var í fréttum um Verslunarmannahelgina þrátt fyrir að tímabilið sé ekki hafið og hann ekki að spila með Real Madrid í undirbúningsleikjunum.

Ronaldo gaf nefnilega umboðsmanni sínum gríska eyju í brúðkaupsgjöf og tók því mjög illa í viðtali þegar hann var spurður út í FIFA-skandalinn.

Þetta áhugaverða myndband af þessari tilraun Cristiano Ronaldo má finna hér fyrir neðan.

People are going to think that I'm crazy!#LIVELIFELOUDwww.ebay.com/roc

Posted by Cristiano Ronaldo on 3. ágúst 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×