Körfubolti

Craig fyrsti erlendi þjálfarinn í 26 ár á Smáþjóðaleikunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Craig Pedersen fyrir miðju með aðstoðarþjálfurunum Arnari Guðjónssyni og Finni Frey Stefánssyni.
Craig Pedersen fyrir miðju með aðstoðarþjálfurunum Arnari Guðjónssyni og Finni Frey Stefánssyni. mynd/kkí
Kanadamaðurinn Craig Pedersen mun stýra íslenska karlalandsliðunu á Smáþjóðaleikunum í næstu viku alveg eins og í Evrópukeppninni síðasta haust.

Strákarnir okkar hefja leik í Laugardalshöllinni í kvöld þegar þeir mæta liði Andorra klukkan 19.30. Vísir verður með beina lýsingu frá leiknum.

Það eru hinsvegar liðnir hátt í þrír áratugir síðan að íslenska karlalandsliðið spilaði á Smáþjóðaleikum undir stjórn erlends þjálfara.

Síðasti erlendi þjálfari liðsins á undan Craig Pedersen var Ungverjinn Laszlo Nemeth sem þjálfaði íslenska landsliðið á Smáþjóðaleikunum á Kýpur árið 1989.

Svíinn Peter Öqvist var þjálfari íslenska liðsins á síðustu Smáþjóðaleikum í Lúxemborg en hann átti ekki heimangengt á það mót og aðstoðarþjálfarar hans, Pétur Már Sigurðsson og Arnar Guðjónsson, stýrðu liðinu á leikunum. Pétur Már var þá þjálfarinn.

Arnar Guðjónsson er enn aðstoðarþjálfari íslenska liðsins og mun aðstoða Craig Pedersen á Smáþjóðaleikunum ásamt Finni Frey Stefánssyni, þjálfara Íslandsmeistara KR.

Íslenska liðið vann tvo af þremur leikjum sínum undir stjórn Laszlo Nemeth á Smáþjóðaleikunum á Kýpur fyrir 26 árum en varð að sætta sig við bronsverðlaunin þrátt fyrir sigra á bæði Möltu og Lúxemborg.

Fyrsti leikurinn tapaðist á móti Andorra þar sem íslenska liðið spilaði aðeins þremur dögum eftir að liðið spilaði fjóra leiki á fjórum dögum í Portúgal í undankeppni EM.

Craig Pedersen er níundi þjálfari íslenska karlalandsliðsins á Smáþjóðaleikum em Torfi Magnússon hefur bæði farið á flesta leika með liðið (3) sem og stýrt liðinu í flestum leikjum (13).

Flestir leikir þjálfara á Smáþjóðaleikum:

Torfi Magnússon · 13

Sigurður Ingimundarson · 10

Friðrik Ingi Rúnarsson · 10

Pétur Már Sigurðsson · 4

Jón Kr. Gíslason · 4

Friðrik Ragnarsson · 4

Laszlo Nemeth · 3

Einar Bollason · 3

Leikir Íslands undir stjórn Laszlo Nemeth á Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1989:

4 stiga tap á móti Andorra (79-83)

 - Magnús Guðfinnsson 17 stig, Guðmundur Bragason 16 stig

11 stiga sigur á Möltu (94-83)

 - Teitur Örlygsson 22 stig, Valur Ingimundarson 21 stig

1 stigs sigur á Lúxemborg (98-97)

 - Teitur Örlygsson 18 stig, Tómas Holton 13 stig, Birgir Mikaelsson 13 stig

Gengi: 3 leikir (2 sigrar - 1 tap)

Uppskera: Bronsverðlaun

Ísland spilar aftur gegn Lúxemborg á fimmtudaginn klukkan 19.30 og svo lokaleikinn sinn á móti Svartfjallalandi á laugardaginn klukkan 16.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×