Enski boltinn

Coventry lítil mótstaða fyrir Brighton

Anton Ingi Leifsson skrifar
Brighton fagnar einu af þremur mörkum sínum í dag.
Brighton fagnar einu af þremur mörkum sínum í dag.
Brighton Albion lenti ekki í teljandi vandræðum með D-deildarlið Coventry City í ensku bikarkeppninni í kvöld. Lokatölur urðu 3-1 sigur Brighton, en leikið var í Brighton.

Það tók heimamenn ekki nema fimmtán mínútur að komast yfir, en það gerði Jurgen Locadia. Connor Goldson kom svo Brighton í 2-0 fyrir hlé og staðan orðin góð.

Jose Leonardo Ulloa bætti svo við þriðja markinu eftir rúma klukkustund, en D-deildarliðið náði að klóra í bakkann með marki frá Jonson Clarke-Harris. Loktaölur 3-1.

Brighton er því komið áfram í 8-liða úrslitin, ásamt Southampton, Chelsea og  Leicester.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×