Lífið

Courtney Love leikur í Sons of Anarchy

Courtney Love kemur til með að leika í sjöundu, og jafnframt síðustu, þáttaröð af Sons of Anarchy sem fer í loftið í haust. Hún mun leika kennara Abels, eldri sonar Jax Teller en Jax er leikinn af hjartaknúsaranum Charlie Hunnam.

Söngvarinn Marilyn Manson mun einnig leika í þáttaröðinni en Sons of Anarchy er uppáhalds þátturinn hans.

„Sons er búinn að vera stór hluti af mínu lífi og lífi föður míns líka. Ég vildi gera hann stoltann með því að reyna að landa hlutverki í þáttunum en þeir verða eflaust lengi þekktir fyrir að vera einir bestu sjónvarpsþættir samtímans,“ sagði Manson í viðtali fyrr á árinu. 

Það má búast við miklu af þessari lokaseríu en sjötta þáttaröðin skildi áhorfendur eftir með öndina í hálsinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×