Fótbolti

Costa skoraði aftur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Costa fagnar marki sínu í kvöld.
Costa fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty
Diego Costa var á skotskónum fyrir Atletico Madrid sem tapaði 2-1 fyrir Sevilla í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum spænska konungsbikarsins.

Costa kom Atletico yfir á 73. mínútu, en Miguael Angel Moya skoraði sjálfsmark sex mínútum síðar. Þetta var annað mark Costa síðan hann kom til Atletico frá Chelsea.

Tveimur mínútum fyrir leikslok skoraði svo Joaquin Correa sigurmarkið, en liðin mætast aftur eftir rúma viku.

Í hinum leik kvöldsins vann Valencia 2-1 sigur á Alaves með mörkum frá Goncalo Guedes og Rodrigo. Gestirnir í Alvanes léku einum færri frá 78. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×