Fótbolti

Costa gæti farið upp í kaupin á Griezmann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann. vísir/getty
Þó svo félagaskiptaglugginn sé nýlokaður þá eru félögin engu að síður að spá í framtíðinni.

Einn af þeim sem verður áfram orðaður við stærstu félögin er Frakkinn Antoine Griezmann sem spilar með Atletico Madrid.

Bæði Man. Utd og Chelsea eru sögð ætla að ganga ansi langt í að reyna að kaupa hann.

Chelsea er meðal annars sagt ætla að láta Diego Costa upp í kaupin en Costa ku vera spenntur fyrir því að fara í spænska boltann.

Miðað við áhugann á Griezmann þá verður hann einn af dýrustu leikmönnum heims ákveði félagið að selja.

Sjálfur hefur Griezmann sagt að hann fari ekki frá félaginu á meðan Diego Simeone þjálfar liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×