Lífið

Corden skaut ávöxtum að gestunum

Samúel Karl Ólason skrifar
Ávextirnir springa af miklum krafti.
Ávextirnir springa af miklum krafti.
James Corden tók á móti þeim Jessica Alba, Kate Mara og Ken Jeong í þætti sínum nú í vikunni. Enginn virðist komast í þáttinn hjá Corden án þess að þurfa að bregða á leik og að þessu sinni skaut hann ávöxtum að þeim.

Leikararnir stilltu sér upp á bakvið glervegg og var ávöxtum skotið í vegginn af miklum krafti. Markmið gestanna í þessum leik er að bregða ekki við það þegar ávextirnir springa aðeins nokkrum sentímetrum frá andlitum þeirra.

Það var einungis einn í salnum sem sýndi nánast engin viðbrögð.

Það var þó ekki það eina sem gerðist í þættinum, en Alba setti varalit á þá Corden og Keong sem kysstust svo.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×