Lífið

Corden og Michelle Obama á rúntinum: Forsetafrúin rappaði með Missy Elliot

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stemning á rúntinum hjá þeim.
Stemning á rúntinum hjá þeim. vísir
James Corden skellti sér á rúntinn á dögunum eins og hann gerir svo reglulega en að þessu sinni fór hann með engri annarri en Michelle Obama, eiginkonu Barack Obama Bandaríkjaforseta.

Um er að ræða ákveðin dagskrálið sem Corden kallar Carpool Karaoke en Bretinn stýrir þættinum The Late Late Show vestanhafs en saman tóku þau nokkur vel valinn lög með Stevie Wonder, Beyoncé og fleirum.

Missy Elliot mætti einnig í bílinn og tók lagið með þeim tveim, og gerði allt vitlaust. Það er nokkuð ljóst að það er gaman á rúntinum með Michelle Obama eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×