Lífið

Corden og Cruise endurléku feril leikarans og Cuba Gooding Jr. mætti óvænt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Algjört meistaraverk.
Algjört meistaraverk.
Spjallþáttastjórnandinn James Corden fékk Íslandsvininn Tom Cruise í heimsókn í þáttinn The Late Late Show á dögunum og fór leikarinn á kostum.

Corden fékk hann til að fara yfir ferilinn á leikrænan hátt og tókst það heldur betur vel. Cruise endurlék ótal hlutverk, alveg frá Top Gun yfir í Jerry Maguire, A Few Good Men og Mission Impossible.

Tom Cruise er núna að þræða spjallþættina í kynningastarfi fyrir nýjustu mynd sína, Jack Reacher: Never Go Back. Atriðið hjá þeim félögunum heppnaðist einstaklega vel og mætti meðal annars Cuba Gooding Jr. sem gestaleikari.

Hér að neðan má sjá þá Cruise og Corden fara yfir feril leikarans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×