Matur

Coq au Vin kjúklingapottréttur

Rikka skrifar
visir.is/shutterstock

Í síðasta þætti Sælkeraheimsreisu Völu Matt heimsótti hún hina frönsku Dominique og fræddist um ljúffenga matargerð frá heimalandi hennar. Hún útbjó klassískan Coq au vin kjúklingapottrétt sem allir geta leikið eftir og bragðast dásamlega.

Coq Au Vin

Fyrir 6

2 pk af kjúklingalæri og leggi

1 bragðmikil rauðvínsflaska

250 g beikon bitar

250 g sveppir

1 fínsaxaður laukur

2 gulrætur í skífum

2 hvítlauksgeira

tímian, oregano og 2 lárvíðarlauf

1 msk piparkorn

5 cl koníak (má sleppa)

3 msk olíu (olífuolía er best)

1 msk hveiti

salt og pípar

Aðferð

1) Lengri aðferð (bragðast betra að sjálfsögðu)

Kvöldið áður, látið kjúklinga marinerast í rauðvíninu ásamt kryddjurtum, lauknum, hvítlauknum, gulrætunum og píparkornunum.

Sama dag: sía marineringuna, steikið kjötið í olíunni og takið af pottinum þegar það er gyllt, steikið við vægan hita grænmetið sem var í marineringunni, bæta hveitinu og hrærið vel, bæta svo kjötinu og beikóni útí. Bætið fyrst koníaki, svo víninu frá marineringunni. Sjóðið í 2 til 2 1/2 klst. 15 mínutur fyrir lok, steikið sveppina á pönnu í smjöri og bætið í pottinn.

2) fljótlegri aðferð

Steikið lauk, hvítlauk, kryddjurtir, beikónbitana og kjúklingabitana saman í potti í olíu þangað til kjötið hefur brúnast aðeins. Setjið hveitið útí og hrærið vel, hellið svo rauðvínið útí (ég hef alltaf ca 1 glas af grænmetissoð líka með), bætið svo sveppunum, gulrætunum, piparkornunum og koníakinu útí. Sjóðið í 2til 2 1/2 klst.

(það er ekki eins nauðsynlegt að láta lærin og leggi marinerast en þegar notuð er heil hæna eins og í upprunalega uppskrift, eða hana, sem sagt "le coq". Uppskriftin varð til með það í huga að nota fullorðinn fugl sem þurfti að sjóða mjög lengi til að vera ætur!)


Tengdar fréttir

Uppskriftir úr Sælkeraheimsreisunni

Vala Matt fór nýlega af stað með nýja þáttaröð á Stöð 2, Sælkeraheimsreisuna. Þar heimsækir hún fólk hvaðanæfa að úr heiminum og eldar með þeim dýrindis máltíðir. Í síðasta þætti heimsótti hún fjölskyldu frá Nepal sem býr hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×