Enski boltinn

Conte ekki bjartsýnn um að ná í fleiri leikmenn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Antonio Conte.
Antonio Conte. Vísir/EPA
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að félagið verði í vandræðum með að semja við fleiri leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar 31. ágúst.

Liðið hefur nú þegar styrkt hópinn með því að fá þá N'Golo Kante og Michy Batshuayi í sumar en Conte hefur viljað fá fleiri leikmenn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég verð að vera hreinskilinn, ég held að við eigum ekki eftir að ná að semja við þá leikmenn sem við viljum fyrir lok félagaskiptagluggans,“ sagði Conte á vikulegum blaðamannafundi í gær.

Hann segist ekki hafa útilokað neitt en er ekki bjartsýnn.

„Við þurfum að einbeita okkur að leiknum gegn Burnley um helgina og síðan sjáum við til hvernig málin þróast.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×