Enski boltinn

Conte: Dóttir mín er mikilvægari en eiginkonan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea.
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea. Vísir/Getty
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, mætti nýrakaður á blaðamannsafundi í dag þar sem hann ræddi komandi leik á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Chelsea er búið að vinna fjóra deildarleiki í röð og hefur enn ekki fengið á sig mark í nóvembermánuði. Liðið mætir því í góðum gír til leiks á Anfield á morgun.

Blaðamenn tóku náttúrulega strax eftir því að Conte væri búinn að finna aftur rakvélina sína enda hefur skeggvöxtur Ítalans vakið nokkra athygli á síðustu vikum.

Conte var spurður út í hvað kom til. „Dóttir mín sagði að liti út fyrir að vera eldri með skeggið. Dóttir mín er mikilvægari en eiginkonan,“ sagði Antonio Conte brosandi.

Antonio Conte og eiginkona hans Elisabetta giftu sig árið 2013 en þau höfðu verið saman í fimmtán ár fyrir brúðkaupið.

Vittoria Conte, dóttir þeirra er tíu ára gömul en hún fæddist árið 2007. Antonio hefur oft talað um hana og segir hana horfa á alla leikina hjá honum. Það fer ekkert á milli mála að hann sér ekki sólina fyrir henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×