Sport

Conor svarar Bolnum á Twitter

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor leiddist í dag og spjallað því við Bolinn og var það vel þegið hjá mörgum.
Conor leiddist í dag og spjallað því við Bolinn og var það vel þegið hjá mörgum. vísir/getty
Það virðist ekki fara neitt sérstaklega vel í Írann Conor McGregor að fá ekki að keppa á UFC 200 í sumar og hann minnti á sig á Twitter í dag.

Þá fór hann að svara fólki á Twitter en það er eitthvað sem hann er ekki vanur að gera.

Conor var aðallega að svara fólki með væntanlegan bardaga við Nate Diaz. Írinn var að lofa því að hann myndi skóla Diaz til að þessu sinni.

Einnig segir hann það leiðinlegt fyrir UFC að hann verði fjarverandi á bardagakvöldinu því þar hafi UFC misst af tækifæri á því að slá met í sjónvarpsáskriftum.

MMA

Tengdar fréttir

Jones og Cormier koma í stað Conor og Diaz

UFC tilkynnti í dag nýjan aðalbardaga fyrir UFC 200 í júlí. Þar með er líklega endanlega ljóst að Conor McGregor og Nate Diaz berjast ekki það kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×