Sport

Conor og Nate hnakkrifust í sjónvarpsviðtali

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðið í Las Vegas var ekki búið eftir blaðamannafundinn í gær því Conor McGregor og Nate Diaz tókust svo á fyrir framan sjónvarpsvélarnar.

Farið var með þá í sitt hvort herbergið á MGM Grand til þess að taka þátt í viðtalinu. Fyrir utan hvort herbergi voru sex lögreglumenn.

Sjá einnig: Conor og Nate létu hnefana tala of snemma | Sjáðu blaðamannafundinn

Conor lét Diaz heyra það í viðtalinu. Sagðist vera búinn að jarða þrjá menn í eyðimörkinni í Vegas. „Gröfin hans Nate verður aðeins stærri en hinar,“ sagði McGregor en Diaz átti oft í erfiðleikum með að svara Íranum sem er að vinna upphitunarslaginn með stæl.

Diaz bætti litlu nýju við sitt mál er hann kom upp einhverjum orðum. Sagði að Conor hefði bara slegist við dverga og núna fengi hann að berjast við alvöru karlmann. Í fullri stærð.

Lokin á viðtalinu eru síðan mögnuð en þá keppast þeir við að senda hvor öðrum pillur áður en þeir fara úr loftinu.  Sjá má þetta stórskemmtilega viðtal hér að ofan.

MMA

Tengdar fréttir

Conor með tvo Rolls Royce

Í nýjasta upphitunarþættinum fyrir UFC 196 er kíkt í heimsókn í glæsivilluna hjá Conor McGregor þar sem hann er með mikinn bílaflota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×