Sport

Conor og Diaz mætast aftur í ágúst

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Diaz sigraði Conor í mars síðastliðnum.
Diaz sigraði Conor í mars síðastliðnum. vísir/getty
Conor McGregor snýr aftur í búrið þegar hann mætir Nate Diaz á UFC 202, bardagakvöldi sem verður haldið í T-Mobile Arena í Las Vegas 20. ágúst næstkomandi.

Conor gefst þarna tækifæri til að hefna fyrir tapið fyrir Diaz á UFC 196 í mars.

Conor og Diaz áttu upphaflega að mætast á UFC 200 í júlí en bardaginn datt upp fyrir vegna deilna Írans kjaftfora og UFC um fjölmiðlaskyldur hans.

Síðan þá hefur UFC reynt að koma þessum bardaga aftur á og það tókst loksins eftir að samkomulag náðist við Diaz.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×