Sport

Conor McGregor sýnir heiminum sérsmíðaðan iPhone 7 - Mynd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Conor verður í eldlínunni í næsta mánuði.
Conor verður í eldlínunni í næsta mánuði. vísir/getty
UFC stjarnan Conor McGregor birtir skemmtilega mynd af sér á Instagram þar sem hann leyfir fylgjendum sínum að sjá nýjan iPhone 7 síma sem hann lét sérsmíða fyrir sig.

Á símanum má sjá mynd af tígrisdýri, samskonar mynd og McGregor er með húðflúrað á bringuna á sér.

Á myndinni má sjá McGregor halda á sérsmíðuðum viðarkassa og í honum má sjá glænýjan og glæsilegan iPhone 7 síma.

Síminn er hannaður af fyrirtækinu IDesigngold, fyrirtæki sem er í samstarfi við Apple um sérsmíðaða síma, og kostar þeir skildinginn.

McGregor berst við Eddie Alvarez á UFC 205 í New York.

Custom iphone 7. Good man @cian_c I'm an animal

A photo posted by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) on

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×