Lífið

Conor McGregor „kvaddi“ UFC með flöskuborði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Daníel Örn og fleiri fengu mynd af sér með Conor á Vegamótum á miðvikudagskvöldið.
Daníel Örn og fleiri fengu mynd af sér með Conor á Vegamótum á miðvikudagskvöldið.
Bardagakappinn Conor McGregor og félagar hans í bardagaíþróttafélaginu Mjölni voru heldur betur í gírnum á miðvikudagskvöldið. Í annað skiptið á þremur dögum var viðkomustaður írska bardagakappans skemmtistaðurinn Vegamót en hann snæddi þar á mánudagsskvöldið eins og Vísir greindi frá.

Conor virtist í góðu stuði á mánudagskvöldið, gaf sig á tal við aðdáendur í miðbænum og hringsólaði í kringum einn þeirra og vísaði í lag með Kanye West. Sólarhring síðar tilkynnti hann að hann væri hættur í UFC.

Uppi var fótur og fit í UFC-heiminum og sýndist sitt hverjum. Töldu margir að fregnunum ætti að taka með fyrirvara. Dana White, eigandi UFC, dró Conor út úr UFC-200 bardagakvöldinu og sagði Conor hafa neitað að mæta til Las Vegas í kynningarskyni á laugardaginn. Þeir Dana og Conor eiga greinilega ýmislegt órætt og ekki öll kurl komin til grafar.

Í miðri hringavitleysunni skellti Conor McGregor sér með Jóni Viðar Arnþórssyni og fleiri félögum á Vegamót. Hópurinn lyfti sér upp og pantaði flöskuborð. Með flöskuborði er átt við að greidd er tiltölulega há greiðsla fyrir borð á góðum stað sem með fylgja flöskur af sterku áfengi og drykkjum til að blanda með.

Síðan hefur Conor sent UFC skýr skilaboð. Hann er tilbúinn að berjast en vill ekki þurfa að taka jafn mikinn þátt og áður í að kynna UFC.

MMA

Tengdar fréttir

Conor segist ekki vera hættur og kastar boltanum yfir til UFC

Írinn Conor McGregor sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann segist ekki vera formlega hættur í MMA og segist enn vera til í að keppa í sumar. Málið er samt ekki svo einfalt að hann sé á leið út til Las Vegas í dag og allt sé í góðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×