Lífið

Conor McGregor: Fagnaði fram eftir nóttu eftir bardagann við Diaz

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Conor McGregor, á meðan á bardaganum stóð og eftir.
Conor McGregor, á meðan á bardaganum stóð og eftir. Vísir/Getty
Íslandsvinurinn Conor McGregor virðist ekki hafa eytt allri orku sinni í bardagann á móti Nate Diaz í gær. Í stað þess að fara heim og hvílast eftir átakanlegan bardaga fór hann rakleiðis á Intrigue næturklúbbinn í Las Vegas og fagnaði fram eftir nóttu með viðhlægjendum og vinum.

Mikil spenna var fyrir bardaganum en báðir bardagamennirnir voru standandi eftir fimm lotur.  McGregor  vann á dómaraúrskurði en ekki allir dómararnir voru sammála.  Nate   Diaz  er sagður afar ósáttur við niðurstöðuna og líklegt er talið að hann muni reyna að fá að berjast við  Conor  í þriðja skipti.

Margir af félögum  Conor   McGregor  mættu í gleðskapinn en þar má nefna  Niall   Horan  úr hljómsveitinni  One   Direction . Kærasta  McGregor Dee   Devlin , var honum einnig þar til halds og trausts.

Hér fyrir neðan má svo sjá myndband sem tekið var upp í veislunni.

Það var fréttastofa  TMZ  sem greindi frá.

Tengdar fréttir

Conor náði fram hefndum í ótrúlegum bardaga

UFC 202 fór fram í nótt þar sem þeir Conor McGregor og Nate Diaz mættust í ótrúlegum bardaga. Conor McGregor tókst að hefna fyrir tapið í mars með sigri eftir dómaraákvörðun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×