Sport

Conor í leit að tígrisdýri

Conor McGregor með heimsmeistarabeltið í Las Vegas.
Conor McGregor með heimsmeistarabeltið í Las Vegas. vísir/getty
Conor McGregor vill kaupa sér tígrísdýr en vill ekki kaupa tígur eins og Mike Tyson.

„Mike Tyson átti hvítan tígur. Ég vil fá appelsínugulan og svartan," sagði McGregor en hann er í leit að tígrishvolpi.

McGregor hefur orðið moldrík ofurstjarna á skömmum tíma og margir spá því reyndar að hann verði jafn fljótur að tapa peningunum og Mike Tyson.

McGregor er mjög hrifinn af tígrisdýrum og fékk sér tigrísdýratattú fyrir bardagann gegn Chad Mendes á dögunum.

Nú er bara að bíða og sjá hvort hann láti verða af því að kaupa sér þetta hættulega gæludýr.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×