Sport

Conor hæðist að Diaz: „Ég óttaðist um líf mitt“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það varð gjörsamlega allt vitlaust á blaðamannafundinum fyrir UFC 202 í gær er Conor McGregor og Nate Diaz grýttu flöskum í hvorn annan.

Conor mætti allt of seint á fundinn og fljótlega eftir að hann kom þá ákvað Diaz að yfirgefa svæðið ásamt sextán manna föruneyti. Þeir gáfu Conor allir puttann og byrjuðu svo að kasta vatnsflöskum í áttina að honum.

Írinn var fljótur að standa á fætur, safna saman flöskunum á borðinu fyrir framan sig og grýta þeim í Diaz og félaga. Hann tók meira að segja orkudrykkjadósirnar frá Monster og kastaði þeim yfir hálfan salinn.

„Ég sá að þeir voru að kasta flöskum. Þá sagði ég bara ok. Fuck that. Þið viljðið kasta flöskum. Þá kasta ég dósum,“ sagði Conor eftir þessa ótrúlegu uppákomu en hann sló samt á létta strengi. „Ég var bara að verja sjálfan mig. Ég óttaðist um líf mitt,“ sagði Írinn hæðnislega.

Þarna lauk blaðamannafundinum áður en Írinn náði nokkru flugi í sínum sálfræðileikjum. Diaz leyfði honum ekki að komast í gang sem var klókt.

„Conor gengur þarna inn eins og hann sé það sem allt snýst um. Þá fannst mér sýningin aftur á móti vera búinn og þess vegna fór ég,“ sagði Diaz en þetta var töfrabragð kvöldsins í David Copperfield-salnum.

Þessi læti hafa vakið enn meiri áhuga á þessum risabardaga og mun líklega verða þess valdandi að allir munu græða meira.

Bardagakvöldið stóra verður í beinni á Stöð 2 Sport á laugardagskvöld. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is.

Hér að ofan má sjá blaðamannafundinn í heild sinni. Lætin byrja eftir 20 mínútur.

MMA

Tengdar fréttir

Conor getur ekki hætt að æfa

Í nýjasta þættinum af Embedded er fylgst með Conor McGregor á heimili sínu í Las Vegas þar sem aldrei er róleg stund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×