Sport

Conor grét í sturtunni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor og unnusta hans, Dee Devlin, eftir að Conor vann sitt fyrsta belti í júlí árið 2015. Þau fóru svo í sturtu saman þar sem Conor grét af gleði.
Conor og unnusta hans, Dee Devlin, eftir að Conor vann sitt fyrsta belti í júlí árið 2015. Þau fóru svo í sturtu saman þar sem Conor grét af gleði. vísir/getty
Írska ofurstjarnan Conor McGregor er í forsíðuviðtali hjá GQ þar sem hann talar meðal annars um sínar mýkri hliðar.

GQ spyr hann út í hvaða dýr hann elskar og líka hvenær hann grét síðast.

„Það var líklega þegar ég vann minn fyrsta titil hjá UFC. Ég ferðaðist um allan heiminn í aðdraganda bardagans og vann svo á endanum. Ég var í sturtunni með kærustunni minni og þá byrjaði ég að gráta,“ sagði Conor við GQ.

„Ég hef sem betur fer verið svo lánsamur að hafa ekki þurft að gráta út af einhverju sorglegu. Ég er mjög ánægður með það.“

GQ hafði einnig mikinn áhuga á því hver væri hans uppáhalds rómantíska gamanmynd.

„Það er líklega Scarface. Ást Tony á peningum var stórkostleg. Svo sannarlega falleg ástarsaga,“ segir Conor léttur en hvað hræðist hann mest?

„Það eru allir einhvern tímann hræddir. Það er ekkert klikkað í gangi hjá mér eins og ég sé hræddur við trúða eða álíka. Ég reyni að halda mér frá öllu óttaslegnu og get ekki leyft mér slíkt í mínum bransa.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Conor á möguleika gegn Mayweather

Gunnar Nelson hefur trú á því að Conor McGregor gæti staðið upp í hárinu á Floyd Mayweather ef þeir myndi mætast í hnefaleikabardaga eins og stefnt er að þessa dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×