Sport

Conor fær að berjast við dvergvaxna sterahausinn

Conor fær að lemja á Siver og leiðist það líklega ekki.
Conor fær að lemja á Siver og leiðist það líklega ekki. vísir/getty
Það var staðfest í dag hvar og hvenær Íslandsvinurinn Conor McGregor berst næst.

Það verður í Boston í Bandaríkjunum þann 18. janúar á næsta ári. Þá mun McGregor berjast við Þjóðverjann Dennis Siver sem hann hefur ekki talað fallega um áður. Hann kallaði hann dvergvaxinn sterahaus.

Þetta verður aðalbardaginn á UFC-kvöldi sem fer fram í TD Garden sem er heimavöllur körfuboltaliðsins Boston Celtics.

McGregor hefur flogið upp styrkleikalistann í UFC en hann hefur unnið alla fjóra bardaga sína í UFC sannfærandi.

Siver barðist á sama kvöldi og Gunnar Nelson í Stokkhólmi í byrjun mánaðarins. Þá vann hann sannfærandi sigur á Charles Rosa en það var valinn bardagi kvöldsins.

Siver hefur unnið fjóra af síðustu fimm bardögum sínum. Hann er 35 ára og mjög reyndur. McGregor gæti því þurft að hafa fyrir hlutunum gegn Þjóðverjanum.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×