Sport

Conor berst um léttvigtarbeltið í New York á trufluðu bardagakvöldi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gleðileg jól.
Gleðileg jól. mynd/skjáskot
Conor McGregor mætir Eddie Alvarez á UFC 205-bardagakvöldinu í New York 12. nóvember og fær þar tækifæri til að hirða léttvigtarbeltið af Bandaríkjamanninum og vera fyrst handhafi tveggja heimsmeistaratitla í UFC. Bardaginn fer fram viku áður en Gunnar Nelson mætir aftur í búrið í Belfast.

UFC staðfesti aðalbardaga kvöldsins í nótt en þetta verður í fyrsta skipti sem UFC-kvöld fer fram í New York eftir að banni á bardagakvöldum í ríkinu var aflétt fyrr á árinu.

Conor, sem er handhafi heimsmeistaratitilsins í fjaðurvigt, átti að berjast gegn Rafael dos Anjos um léttvigtarbeltið í mars en Dos Anjos þurfti að hætta við nokkrum vikum fyrir bardagann vegna meiðsla.

Þess í stað barðist Conor McGregor við Nate Diaz og tapaði en þegar þeir mættust aftur á UFC 202 hefndi írski vélbyssukjafturinn fyrir tapið og tók Diaz á meirihluta ákvörðun dómara.

Eddie Alvarez er 32 ára gamall Bandaríkjamaður frá Phiadelphia sem varð heimsmeistari í léttvigt í júlí þegar hann vann Rafael dos Anjos í titilbardaga á tæknilegu rothöggi í fyrstu lotu.

Alvarez hefur unnið 28 bardaga og tapað fjórum á sínum ferli en hann tapaði í frumraun sinni í UFC gegn Donald „Cowboy“ Cerrone fyrir tveimur árum. Hann hefur síðan þá unnið Gilbert Melendez og Anthony Pettis á dómaraúrskurði og nú síðast Dos Anjos í bardaga um léttvigtarbeltið.

Conor McGregor hefur ekki enn varið fjaðurvigtarbeltið sitt síðan hann rotaði Jose Aldo á tólf sekúndum í desember á síðasta ári.

Bardagakvöldið verður stjörnum prýtt en auk Conors og Alvarez mun Tyron Woodley verja beltið sitt í veltivigt, þyngdarflokki Gunnars Nelson, á móti Stephen Thompson.

Joanna Jedrzejcyk ver einnig heimsmeistaratitilinn sinn þegar hún leggur beltið í strávigt undir gegn samlöndu sinni frá Póllandi, Karolinu Kowalkiewicz.

Fleiri magnaðir bardagar fara fram þetta kvöld en hér má sjá allt kortið.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×