Sport

Conor: Ég er UFC

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
McGregor er vinsæll og veit af því.
McGregor er vinsæll og veit af því. Vísir/Getty
Conor McGregor er ekki þekktur fyrir hógværð sína eins og sjá mátti á færslu sem hann setti á Instagram-síðuna sína í vikunni.

McGregor er á leið til Las Vegas þar sem hann mun berjast við Jose Aldo um titilinn í fjaðurvigt en þetta sama kvöld mun Gunnar Nelson mæta Demian Maia í veltivigtarbardaga.

Sjá einnig: Sjáðu Gunnar glíma við McGregor

Þeir McGregor og Aldo áttu að berjast í Las Vegas í sumar en þá þurfti sá síðarnefndi að hætta við vegna meiðsla. McGregor vann þá bráðabirgðatitil en sá stóri verður í húfi þegar þeir mætast loks 12. desember.

„Á leiðinni á vesturströndina,“ skrifaði McGregor sem ætlar sér vitanlega að ná titlinum af Aldo. „Þar fer ég fyrir UFC 194 sem er 90-100 milljóna dollara virði. Þessi viðburður ásamt UFC 189 þýðir að ég hef aflað UFC nálægt 200 milljónum í tekjur.“

„Ég er ekki UFC-maður. Ég er UFC,“ bætti hann við.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×