Leikjavísir

Conan O'Brien tapar sér í Final Fantasy 15

Samúel Karl Ólason skrifar
Þáttastjórnandinn Conan O'Brian virðist allt annað en sáttur við Final Fantasy 15. Hann fékk leikarann Elijha Wood til þess að spila leikinn með sér en þeir voru báðir mjög áttaviltir vegna leiksins.

O'Brien tók þá ákvörðun fyrir nokkrum árum að þrátt fyrir að hann spilaði aldrei tölvuleiki og vissi ekkert um þá væri kjörið fyrir hann að dæma þá. Myndböndin birtir hann undir yfirskriftinni „Clueless gamer“.

Eftir að hafa varið þó nokkrum tíma í að spila leikinn. Lýsir Conan spiluninni sem herfilegri tímasóun. Á endanum komast þeir báðir að þeirri niðurstöðu að þeir vilja ekki spila lengur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×