Lífið samstarf

comma á leið til Íslands



Þýski tískurisinn comma opnar í Smáralind í september.



Þýska tískuvörukeðjan comma opnar á annarri hæð Smáralindar í byrjun september. comma hefur verið eitt stærsta tískuvörumerki Evrópu síðastliðinn áratug með yfir 100 eigin verslanir í 25 löndum en alls eru vörur comma seldar í meira en 2.200 verslunum víðsvegar um heiminn.

Í heimalandi sínu hefur comma verið markaðsleiðandi undanfarin ár með meiri markaðshlutdeild en verslanakeðjur á borð við Zara og H&M.



Nýjar vörur í hverjum mánuði


Í versluninni hér á landi verður boðið upp á tvær vörulínur: comma og comma casual idendity. comma-vörurnar höfða til nútíma kvenna í starfi eða við sérstök tilefni og fer milliveginn á milli „mainstream“ og háklassa tískuvöru. comma casual idendity er hins vegar meira stílað inn á frístundir með afslappaðra yfirbragði. Einnig verður í boði úrval fylgihluta frá comma. Búðin verður sett upp í anda verslana comma erlendis og koma allar innréttingar frá comma að utan.



Verslunin opnar með vörum úr haust- og vetrarlínunni 2014 sem var formlega kynnt í júlí og verður sá fatnaður fáanlegur allan í vetur. Auk þess koma nýjar vörur í hverjum mánuði sem verða aðeins fáanlegar í þeim mánuði sem þær tilheyra. Þannig verða alltaf splúnkunýjar vörur á boðstólnum hjá comma.



Margir reynt að opna comma hér á landi


comma hefur lengi verið meðvitað um áhuga á opnun verslunar á Íslandi og oft fengið fyrirspurnir þess eðlis frá innlendum aðilum sem hafa óskað eftir leyfi til opnunar á verslun hérlendis. En það var comma sem hafði samband við rekstraraðilana á Íslandi og hafði samband í gegnum umboðsmann sem þau hafa átt í viðskiptum við um langt skeið og var að leita að réttum aðila til að sjá um opnun hérlendis. Það eru þau Hjördís Bjarnadóttir og Hilmar Þórarinn Hilmarsson sem standa að baki opnun comma í Smáralind.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×