Fótbolti

Columbus á góðri siglingu | Kristinn lék síðustu 20 mínúturnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristinn hefur komið við sögu í 16 af 18 deildarleikjum Columbus.
Kristinn hefur komið við sögu í 16 af 18 deildarleikjum Columbus. vísir/pjetur
Kristinn Steindórsson lék síðustu 20 mínúturnar þegar Columbus Crew vann 2-1 sigur á New York Red Bulls í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í nótt.

Columbus hefur gengið ágætlega að undanförnu og halað inn átta stig í síðustu fjórum leikjum sínum. Liðið er komið upp í 2. sæti Austurdeildarinnar með 24 stig, 11 stigum á eftir toppliði DC United. Columbus á hins vegar þrjá leiki inni á DC United.

Red Bulls náði forystunni með marki Anatole Bertrand Abang á 8. mínútu en Ethan Finlay jafnaði metin eftir rúman hálftíma.

Hann var svo aftur á ferðinni á 74. mínútu þegar hann skoraði sigurmark Columbus eftir sendingu frá Kei Kamara sem lagði bæði mörkin upp.

Kristinn hefur komið við sögu í 16 leikjum Columbus á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×