Fótbolti

Cole og Essien sameinaðir í Indónesíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Carlton Cole með nýju treyjuna sína í Indónesíu.
Carlton Cole með nýju treyjuna sína í Indónesíu. vísir/afp
Tveir fyrrum leikmenn Chelsea munu leika saman hjá liði í indónesíska fótboltanum á næsta tímabili.

Fyrrum framherji Chelsea og enska landsliðsins, Carlton Cole, er nefnilega búinn að semja við Persib Bandung í Indónesíu.

Þar er fyrir miðjumaðurinn Michael Essien. Þetta er eitt stærsta félag Indónesíu og um 20 þúsund manns mæta að meðaltali á heimaleiki liðsins.

Forseti ítalska liðsins Inter, Erick Thohir, er á meðal þeirra sem eiga indónesíska félagið.

Cole er orðinn 33 ára og Essien er 34 ára gamall. Þeir eiga því eitthvað eftir félagarnir. Cole var síðast á mála hjá bandaríska félaginu Sacramento Republic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×