Lífið

Coco og Ice-T eiga von á barni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá myndina sem Coco tísti.
Hér má sjá myndina sem Coco tísti. vísir
Coco and Ice-T staðfestu það um helgina að þau eiga von á þeirra fyrsta barni.

Þetta tilkynntu þau bæði á Twitter en höfðu gert ráð fyrir því að tilkynna þetta í spjallþætti sínum á E! þann 3. ágúst.

Erlendir miðlar byrjuðu síðan um helgina að segja fréttir af málinu og því var ákveðið að staðfesta það á samskiptamiðlinum.

Búið var að taka upp þáttinn og því birtir Coco mynd af því þegar hún tilkynnir um óléttuna í þættinum á Twitter. Coco er 36 ára og Ice-T er 57 ára. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×