Körfubolti

Clippers réðu ekkert við Curry né liðsfélaga hans

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Curry gat notið þess að vera áhorfandi í fjórða leikhluta.
Curry gat notið þess að vera áhorfandi í fjórða leikhluta. Vísir/getty
Steph Curry setti 25 af 43 stigum sínum í þriðja leikhluta í stórsigri Golden State Warriors gegn Los Angels Clippers en Golden State sendi sterk skilaboð til Vesturdeildarinnar með 46 stiga sigri 144-98.

Gestirnir frá Los Angeles réðu ekkert við sóknarleik Golden State í leiknum en munurinn í hálfleik var 72-51.

Bætti Golden State verulega við forskotið í þriðja leikhluta og var því fjórði leikhlutinn aðeins formsatriði þar sem aukaleikararnir fengu að sprikla.

Curry lék aðeins 28 mínútur í gær en var þrátt fyrir það með 43 stig, 9 fráköst og sex stoðsendingar.

Hitti hann úr níu af fimmtán þriggja stiga skotum sínum, þar af einu frá miðjuhringnum þegar leiktíminn rann út í fyrri hálfleik en þá körfu má sjá hér fyrir neðan.

Sólarstrákarnir í Miami Heat virðast vera að finna betri takt með hverjum leik en í öðrum leiknum á einum sólahring vann liðið nokkuð sannfærandi sigur á Detroit Pistons á heimavelli.

Var þetta sjöundi sigur Miami í röð sem hafði aðeins unnið ellefu leiki af 41 fram að þessari sigurgöngu.

Miami er þó enn ásamt nágrönnum sínum í Orlando Magic með næst-versta árangurinn í Austurdeildinni en þeir virðast ætla að fikra sig upp töfluna á næstunni.

Þá þurftu leikmenn Boston Celtics á framlengingu að halda til að knýja fram sigur gegn Milwaukee Bucks þrátt fyrir að hafa nánast leitt allan leikinn.

Bucks náðu eins stiga forskoti í fjórða leikhluta en Celtics menn náðu fljótlega að jafna og að vinna leikinn í framlengingu.

Leikir gærkvöldsins:

Charlotte 106-109 Sacramento Kings

Miami Heat 116-103 Detroit Pistons

Milwaukee Bucks 108-112 Boston Celtics

Golden State Warriors 144-98 Los Angeles Clippers

Utah Jazz 102-95 Memphis Grizzlies

Phoenix Suns 112-123 Denver Nuggets

Minnesota Timberwolves 129-109 Brooklyn Nets

Curry æfir langa þrista fyrir leik sem borgar sig: Bestu tilþrif kvöldsins: Curry var sjóðandi í þriðja leikhluta:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×