Körfubolti

Clippers með montréttinn í Los Angeles

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jordan var flottur í nótt.
Jordan var flottur í nótt.
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt og ber þar helst að nefna frábæran sigur Phepnix Suns á San Antonio Spurs, 108-105 í æsispennandi leik. Devin Booker gerði 39 stig fyrir Suns og Kawhi Leonard var með 38 stig fyrir Spurs.

Los Angeles Clippers vann nágrannaslaginn við Los Angeles Lakers, 113-97 með þó nokkrum yfirburðum. De Andre Jordan gerði 24 stig fyrir Clippers og tók heil 21 frákast.

Hér að neðan má sjá úrslitin í nótt:

Phoenix Suns – San Antonio Spurs 108-105

Washington Wizards – Philadelphia 76ers 109-93

Utah Jazz – Orlando Magic 114-107

Los Angeles Clippers – Los Angeles Lakers 113-97

Chicago Bulls – New Orleans Pelicans 107-99

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×