Erlent

Clinton vill láta birta tölvupóstana

Atli Ísleifsson skrifar
Hillary Clinton gegndi embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna á árunum 2009 til 2013.
Hillary Clinton gegndi embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna á árunum 2009 til 2013. Vísir/AFP
Hillary Clinton, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur beðið ráðuneytið um að birta þá tölvupósta sem hún sendi í ráðherratíð sinni úr einkatölvupósti sínum.

Clinton hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki notast við ráðuneytistölvupóstfang sitt þannig að vista mætti tölvupóstana á netþjóni ráðuneytisins.

Í tísti frá Clinton segir að ráðuneytið muni nú fara yfir póstana þannig að birta megi þá eins fljótt og auðið er.

Málið hefur reynst Clinton erfitt þar sem fastlega er búist við að hún bjóði sig fram til forseta landsins á næsta ári og hefur spurningum verið varpað fram um hvort hún hafi áhuga á að fara eftir settum reglum um gagnsæja stjórnsýslu.

Í frétt CNN segir að netþjónninn sem Clinton notaðist við hafi verið hýstur á heimili hennar í Chappaqua í New York ríki.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×