Erlent

Clinton mælist hærri en Trump

Samúel Karl Ólason skrifar
Hillary Clinton.
Hillary Clinton. Vísir/Getty
Hillary Clinton leiðir kapphlaupið um Hvíta húsið um ellefu prósentustig samkvæmt nýrri könnun Reuters fréttaveitunnar. Hún mælist með 46 prósenta fylgi fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum en mótherji hennar Donald Trump mælist með 34,8 prósent.

Nærri því fimmtungur segist styðja hvorugan frambjóðandann.

Bæði Demókratar og Repúblikanar halda flokksþing sín í júlí þar sem frambjóðendur flokkanna verða formlega ákveðnir. Bæði Clinton og Trump hafa náð lágmarksfjölda kjörmanna í forvali til að tryggja sér tilnefninguna.

Samkvæmt frétt Reuters er Clinton með svipað fylgi og í síðustu viku, áður en hún tryggði sér lágmarksfjölda kjörmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×