Erlent

Clinton kallaði Trump hrekkjusvín en hann segir hana spillta

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Clinton og Trump í kappræðum í Washington-háskóla á dögunum.
Clinton og Trump í kappræðum í Washington-háskóla á dögunum. vísir/getty
Hillary Clinton forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum hefur hert baráttuna fyrir Hvíta húsinu og er nú orðin mun beinskeyttari í garð keppinautarins Donald Trump en áður. Tæp vika er í kosningarnar en kosið verður um það hvor þeirra mun gegna embætti forseta Bandaríkjanna næstkomandi þriðjudag, þann 8. nóvember.

Clinton var stödd á kosningafundi í Flórída í gær þar sem hún kallaði Trump hrekkjusvín og sagði að í þrjá áratugi hafi hann ítrekað gert lítið úr, móðgað og ráðist að konum. Clinton kom á sviðið á fundinum ásamt Aliciu Machado sem er fyrrverandi Ungfrú Heimur.

Machado hefur sagt frá því að Trump hafi kallað hana Svínku eftir að hún bætti aðeins á sig og sagði hann grimman mann. Hún hefði meðal annars glímt við átröskun vegna athugasemda Trump.

Á kosningafundinum sagði Clinton að hún hefði lært það í barnaskóla að það væri ekki í lagi að móðga og særa fólk en á kosningafundi í Ohio var Barack Obama Bandaríkjaforseti á svipuðum nótum þegar hann sagði að Trump hefði eytt ævinni í að kalla konur „svín, hunda og subbur.“

Trump var á kosningafundi í Wisconsin í gær. Hann sagði að Clinton væri spillt og að hún myndi leggja bandarískt heilbrigðiskerfi í rúst að eilífu.

Þá hvatti hann þá kjósendur sem gert höfðu þau mistök að kjósa Clinton í utankjörfundaratkvæðagreiðslu að breyta atkvæði sínu áður en atkvæðagreiðslunni lýkur á fimmtudag og kjósa hann. Wisconsin er eitt fárra ríkja í Bandaríkjunum þar sem kjósendum leyfist að breyta utankjörfundaratkvæði eftir á, það er að kjósa aftur.

Það er augljóst að spennan er nú tekin að magnast enda aðeins tæp vika í kosningarnar eins og áður segir. Nýjustu vendingar í tölvupóstamálinu svokallaða, hefur komið Demókrötum illa og gert lítið úr þeim áætlunum Clinton að eyða síðustu vikunni í það að koma jákvæðum boðskap á framfæri.

Einnig hefur dregið á milli þeirra í könnunum og meðaltalskönnun breska ríkisútvarpsins metur stöðuna þannig að Clinton leiði baráttuna, en aðeins með fjörutíu og átta prósentum á móti fjörutíu og sex hjá Trump.


Tengdar fréttir

Trump færist nær Clinton

Óljós yfirlýsing um nýja lögreglurannsókn á tölvupóstum Clinton hefur gagnast Trump á lokametrum kosningabaráttunnar. Yfirmaður FBI sakaður um lögbrot. Talið að Clinton muni beita sér af meiri hörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×