Erlent

Clinton búin að tryggja sér útnefningu Demókrata

Samúel Karl Ólason skrifar
Hillary Clinton sem barist hefur fyrir útnefningu flokks síns, Demókrata, til að verða forsetaefni í næstu kosningum, hefur nú náð nægilegum fjölda kjörmanna til að tryggja sér útnefningu flokksins. Þetta fullyrðir AP fréttastofan.

Samkvæmt nýjustu talningu þeirra á þeim kjörmönnum sem þegar eru komnir fram nýtur Clinton stuðnings 2,383 þeirra kjörmanna sem að lokum munu sækja flokksþing þar sem frambjóðandinn verður formlega útnefndur.

Clinton er því fyrsta konan til að hljóta útnefningu stórs stjórnmálaflokks í Bandaríkjunum.

Samkvæmt talningunni hefur Clinton fengið 1.812 kjörmenn í kosningum og 571 svokallaða ofurkjörmenn sem geta ákveðið sjálfir hvern þeir styðja. Enn hafa 95 af 714 ofurkjörmönnum ekki gefið upp hvern þeir muni styðja.

CNN hefur komist að sömu niðurstöðu.

2,383 er nákvæmlega sú tala sem hún þarf til að tryggja sig þannig að Bernie Sanders, mótframbjóðandi hennar, á ekki tæknilega möguleika á því að ná henni. Sanders vill þó ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana. hann bendir á að í þessari tölu séu fjöldi svokallaðra ofurkjörmanna, sem þurfa ekki að gefa upp skoðun sína, fyrr en á sjálfu þinginu.

Sanders ætlar sér að telja ofurkjörmönnum trú um að hann sé betur til þess fallinn að etja kappi við Donald Trump í forsetakosningunum. AP, sem hefur reglulega hringt í umrædda kjörmenn á síðustu sjö mánuðum, bendir hins vegar á að á þeim tíma hafi enginn þeirra sem lýst hafa yfir stuðningi við Clinton skipt um skoðun og stutt Sanders.

Yfir heildina hefur Clinton fengið rúmlega þremur milljónum fleiri atkvæði en Sanders og unnið í 29 forvölum gegn 21 hjá Sanders.

Í dag stendur þó til að kjósa í þeim sex ríkjum sem eru eftir í forvalinu. Kaliforníu, New Jersey, MontanaNew Mexico og Norður- og Suður Dakóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×