Enski boltinn

Cleverley lánaður frá United til Villa

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tom Cleverley hefur líklega spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United.
Tom Cleverley hefur líklega spilað sinn síðasta leik fyrir Manchester United. vísir/getty
Tom Cleverley, miðjumaður Manchester United, hefur verið lánaður frá félaginu til Aston Villa, en enska úrvalsdeildin samþykkti félagaskiptin í dag, löngu eftir að glugganum var lokað.

Cleverley verður á láni hjá Villa fram í janúar þegar glugginn verður opnaður aftur, en Villa getur þá keypt hann fyrir 7,5 milljónir punda.

Fyrr í vikunni var United búið að samþykkja átta milljóna punda tilboð Villa í leikmanninn en ekkert varð úr því, að því talið er vegna launakrafna Cleverleys.

Samningur miðjumannsins við Manchester United rennur út næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×