Fótbolti

City vann í Róm og fer í 16 liða úrslitin | Sjáðu mörkin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Francesco Totti og Mangala í baráttunni í Róm í kvöld.
Francesco Totti og Mangala í baráttunni í Róm í kvöld. Vísir/Getty
Manchester City er komið áfram í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir glæsilegan 2-0 sigur á Roma í Rómarborg í kvöld.

Eftir markalausan fyrri hálfleik þar sem Joe Hart kom City nokkrum sinnum til bjargar skoraði Samir Nasri frábært mark með föstu skoti í stöngina og inn á 60. mínútu, 0-1.

Nasri var svo arkitektinn á bakvið annað mark City sem bakvörðurinn Pablo Zabaleta skoraði fjórum mínútum fyrir leikslok, en Argentínumaðurinn afgreiddi sendingu Frakkans í netið í teignum.

Bayern vann CSKA Moskvu örugglega í hinum leik riðilsins og vinnur hann, en City fer með Þýskalandsmeisturunum í 16 liða úrslitin á meðan Roma verður að sætta sig við farseðil í Evrópudeildina.

Samir Nasri kemur City yfir með flottu marki, 0-1: Pablo Zabaleta kemur City í 0-2:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×