Enski boltinn

City valtaði yfir Milan | Sjáðu mörkin

Manchester City var í banastuði gegn AC Milan á In­ternati­onal Champ­i­ons Cup í Bandaríkjunum í kvöld. Ensku meistararnir gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik.

Stefan Jovetic
var í stuði í kvöld og byrjaði veisluna eftir tólf mínútur þegar hann skoraði fyrsta markið. Scott Sinclair, Jesus Navas og Iheanacho bættu við mörkum, en Iheanacho er bráðefnilegur piltur.

Sulley Muntari minnkaði muninn fyrir ítalska liðið, en Jovetic bætti svo við öðru sínu marki í upphafi seinni hálfleiks og staðan orðin 5-1. Þannig urðu lokatölurnar.

Til stóð að flauta leikinn af í hálfleik vegna mikillar rigningar en að lokum var ákveðið að láta síðari hálfleikinn fara fram eftir allt saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×