Enski boltinn

City færist nær Aubameyang

Stefán Árni Pálsson skrifar
Forráðamenn Manchester City ætla sér að klófesta Pierre-Emerick Aubameyang frá Borussia Dortmund en leikmaðurinn er einn sá eftirsóttasti í boltanum í dag.

Aubameyang skoraði 39 mörk í 45 leikjum í öllum keppnum fyrir Borussia Dortmund á síðasta tímabili.

Verðmiðinn mun vera 58 milljónir punda og er líklegt að Manchester City sé reiðubúið að greiða þá upphæð. Spænska liðið Atletico Madrid er einnig á eftir Aubameyang og hefur Dortmund nú þegar hafnað tilboði frá þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×