Enski boltinn

City að undirbúa tilboð í Barkley?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Barkley fagnar marki með Everton.
Barkley fagnar marki með Everton. Vísir/Getty
Manchester City er talið vera undirbúa tilboð í Ross Barkley, miðjumann Everton.

Talið er að ensku meistararnir séu tilbúnir að bjóða 25 milljónir punda í enska landsliðsmanninn sem sprakk út á síðasta tímabili.

Liverpool og Manchester United eru einnig talin vera áhugasöm um þennan unga og efnilega leikmann.

Manuel Pellegrini, stjóri Manchester City, vill bjóða Jack Rodwell upp í Barkley, en Rodwell var einmitt seldur frá Everton til City. Hann hefur engan veginn staðið undir væntingum og verið mest megnis á tréverkinu hjá bláa liðinu í Manchester.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×