City á toppinn eftir sigur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sergio Aguero misnotaði víti í kvöld
Sergio Aguero misnotaði víti í kvöld Vísir/Getty
Manchester City er á toppi F-riðils eftir 2-0 sigur á Shakhtar Donetsk á heimavelli.

Kevin de Bruyne kom City yfir á 48. mínútu með frábæru skoti fyrir utan teig eftir að hafa unnið boltann á miðjum vellinum. Raheem Sterling tryggði svo sigur City á 90. mínútu.

Sterling hefur nú skorað 8 mörk í 6 leikjum fyrir City á tímabilinu.

Sergio Aguero misnotaði víti á 72. mínútu, eftir að Ivan Ordets braut af sér inni í vítateig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira