Glamour

Hætta við að sýna í New York

Ritstjórn skrifar
Mary Kate og Ashley Olsen.
Mary Kate og Ashley Olsen. Glamour/Getty
Tvíburasysturnar og fatahönnuðirnir Mary-Kate og Ashley Olsen hafa ákveðið að hætta við sýningu sína á tískuvikunni í New York. 

Tvær vikur eru í tískuvikuna í New York og hefur sýning The Row, fatamerki þeirra systra, yfirleitt verið einn af hápunktum vikunnar. En í ár verður The Row sýnt á pöllunum í París í staðinn. 

Ákvörðunin hefur verið tekin í flýti þar sem merkið er ennþá á dagskránni hjá NYFW og þykir koma nokkuð spánskt fyrir sjónir þeirra sem til þekkja þar sem fyrirhugað er að opna The Row verslun í New York síðar á þessu ári. 

En þá er bara að bíða spennt eftir að sjá þær systur og flotta fatamerki þeirra í París í staðinn. 

Resort 2016 Collection

A photo posted by THE ROW (@therow) on


Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.





×