Glamour

Ciara giftir sig í sérsaumuðum Roberto Cavalli kjól

Ritstjórn skrifar
Ciara og Russell voru glæsileg á brúðkaupsdaginn.
Ciara og Russell voru glæsileg á brúðkaupsdaginn. Mynd/Instagram
Söngkonan Ciara hefur gengið í það heilaða með íþróttamanninum Russell Wilson. Þau hafa verið saman í rúmt ár en trúlofuðu sig í mars á þessu ári. 

Brúðkaupið fór fram í kastala fyrir utan Liverpool í Englandi og voru 100 gestir sem mættu. Meðal þeirra sem voru á staðnum voru Jennifer Hudson og Kelly Rowland en Serena Williams var einnig á gestalistanum en hún komst ekki þar sem hún er að keppa á Wimbledon í London um þessar mundir. 

Ciara var glæsileg í sérsaumuðum kjól frá Roberto Cavalli á meðan Russell var í einföldum en flottum kjölfötum.

Glæsilegt par sem eru loksins gift.
Russell og Ciara gerði samband sitt fyrst opinbert fyrir rúmu ári síðan.





×