Glamour

Christopher Bailey hættur sem forstjóri Burberry

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Burberry hefur ákveðið að skipta út Christopher Bailey sem forstjóra tískuhússins en í hans stað kemur Marco Gobbetti, sem hefur verið við stjórnvölinn hjá franska tískuhúsinu Celine.

Hlutabréf Burberry tískuhússins hækkuðu um 6 prósent við þessar fréttir en einhver óánægja hefur verið meðal hluthafa með Bailey sem forstjóra en hann hefur gegnt því hlutverki samhliða því að vera listrænn stjórnandi tískuhússins í nokkur ár. Gobbetti mun taka við keflinu á næsta ári en Bailey heldur situr áfram sem listrænn stjórnandi. 

Sjálfur er hann ánægður með þessi skipti og segist hlakka til að vinna með Gobbetti í framtíðinni samkvæmt frétt BBC. 

Lúxusfatamerkin hefur verið í ákveðinni krísu undanfarið og brá Burberry á það ráð að bjóða fólki að kaupa föt í beint af tískupallinum. Var það liður í að færa fötin nær viðskiptavininum en ekki er vitað hvernig það gekk. Sjáum hvort Gobbetti nái að leysa vandann. 






×