Glamour

Chrissy Teigen stolt af húðslitinu

Ritstjórn skrifar
Chrissy ásamt eiginmanni sínum, John Jegend.
Chrissy ásamt eiginmanni sínum, John Jegend. Mynd/Getty
Fyrirsætan og matgæðingurinn Chrissy Teigen er þekkt fyrir að vera opinská á samfélagsmiðlum og hún stóð svo sannarlega undir nafni þegar hún birti mynd af húðsliti sínu á dögunum. Þetta er í þriðja sinn sem Chrissy birtir mynd af því en húðslit hefur oft þótt vera mikið feimnismál.

Chrissy hefur verið óhrædd við að opna umræðuna og hafa fjölmargir aðdáendur hennar fylgt henni eftir og birt myndir af sínum eigin sliti. Okkar kona á hrós skilið fyrir þetta framtak, enda er húðslit ekkert til þess að skammast sín fyrir. 

Bruises from bumping kitchen drawer handles for a week. Stretchies say hi!

A photo posted by chrissy teigen (@chrissyteigen) on






×