Golf

Chris Kirk sigraði á Deutsche Bank Championship

Kirk fagnar sigrinum í kvöld.
Kirk fagnar sigrinum í kvöld. AP/Getty
Bandaríkjamaðurinn Chris Kirk sigraði á Deutsche Bank Championship mótinu sem kláraðist í kvöld en sigurinn er hans þriðji á PGA-mótaröðinni á ferlinum.

Hann lék hringina fjóra á TPC Boston vellinum á 15 höggum undir pari, tveimur höggum betur en Geoff Ogilvy, Billy Horschel og Russell Henley sem deildu öðru sætinu á 13 höggum undir pari.

„Ég er í hálfgerðu sjokki með þennan sigur,“ sagði Kirk sem tók forystuna snemma á lokahringnum í kvöld og lét hana ekki af hendi eftir það. „Þetta er stærsti titill ferils míns og mér finnst frábært að hafa spilað jafn vel og ég gerði undir mikilli pressu. Það var líka góð stemning hérna í Boston alla helgina og það hjálpaði til.“

Rory McIlroy endaði jafn í fimmta sæti á 11 höggum undir pari en hann komst aldrei á flug á lokahringnum.

Með sigrinum tekur Kirk forystu í Fed-Ex bikarnum en í næsta móti, BMW meistaramótinu, hafa aðeins 70 stigahæstu kylfingarnir á PGA-mótaröðinni þátttökurétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×