Matur

Chia orkukúlur

Heilsuvísir skrifar

Chia fræ eru stútfull af omega 3 fitusýrum, kalkríka og styrkja þannig bein líkamans sem og þar á meðal tennur. Prótínríkar styrkja vöðvavefi líkamans. Koma jafnvægi á blóðsykurinn þannig að við fáum síður svona sykurlöngun. Möndlur kalkríkar, e vítamín gott fyrir húðina.

Orkukúlur

10 stk

250 g döðlur

50 g ósætt kakó

60 g chia fræ

1 msk kókosolía

1/2 tsk kanill

1/2 tsk vanilludropar

50 g hýðislausar möndlur, saxaðar

50 g pekanhnetur, saxaðar

50 g þurrkuð trönuber

1/2 tsk rifinn appelsínubörkur

örlítið sjávarsalt

Maukið döðlurnar í matvinnsluvél, bætið kakói, chia fræum, kókosolíu, kanil og vanilludropum saman og blandið vel. Bætið hentunum saman við og blandið þær gróft saman við döðlumaukið.

Handhrærið trönuberin, appelsínubörkin og saltið saman við. Smyrjið deiginu í form og kælið í klukkustund. Skerið svo í 10 stykki og berið fram.

Orkukúlurnar geymast best í kæli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×