Skoðun

Chia-grautur og fagleg vinnubrögð

Kristín Soffía Jónsdóttir skrifar
Litla þjóðin sem fyrir svo stuttu síðan sat á moldargólfi í torfbæ og drakk mysu skiptist nú á uppskriftum á chia-grautum á Facebook og ræðir kosti og galla HD-útsendinga frá heimsmeistaramótinu í fótbolta.

Íslendingar geta verið stoltir af því að vera fljótir að tileinka sér nýjungar og vera óhræddir við tækni og framfarir. Orðspor okkar hefur jafnvel náð út fyrir landsteinana og þar erum við víst talin frábær í að takast á við ný og krefjandi verkefni enda til í allt (heyrt á hárgreiðslustofu).

Það sem er kannski lýsandi fyrir það hversu greiðan aðgang nýjungar eiga að Íslendingum er chia-grautur. Chia-grautur er frekar dýr vara sem hefur slepjukennda áferð og er smá vesen að útbúa. Fyrir 1.800 krónur má kaupa grátt slím sem minnir helst á einhverja óhugnanlega framtíðarmynd. Á örskömmum tíma hefur hann leyst af hafragrautinn, ristaða brauðið og jógúrtina.

Ég er stolt af því að vera hluti af þessari litlu þjóð sem hefur þróast á undraverðum hraða og sýnt heiminum að við séum alvöru leikmenn sem komast næstum því á HM. Ég er líka orðin þreytt á því að gömul vinnubrögð og skortur á fagmennsku sé hin hliðin á sama peningi.

Þá er ég kannski komin að punktinum, fylgja þessum nýjungum og framförum í tækni ný vinnubrögð?

Þær framfarir sem felast í því að skipa nefnd sem meta á hæfi seðlabankastjóra mega ekki felast í því að nefndin hittist á Skype og póki hvert annað á Facebook, heldur í faglegu vali nefndarmanna og faglegri vinnu nefndarinnar.

Gæði Háskóla Íslands sem óháðrar stofnunar geta ekki falist í spjaldtölvuvæðingu heldur því smáverkefni að stimpla ekki hvað sem er sem óháða úttekt í eigin nafni.

Ég rauk til og keypti chia-graut og mallaði eitthvað í flýti í eldhúsinu og endaði uppi með eitthvað hræðilegt grátt slím sem ég slafraði í mig í nafni framfara.

Við erum komin með nýjungarnar, við erum óhrædd og hugrökk. Núna þurfum við bara að tryggja vönduð vinnubrögð og þá lukkast þetta vel. Eftir ábendingar á Facebook í gær lærði ég að möndlumjólk og kíví eru lykillinn að vel lukkuðum chia-graut. Þar hafið þið það.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×