Glamour

Cheryl formlega skilin við eiginmann sinn

Ritstjórn skrifar
Ástin lifði stutt hjá Cheryl í þetta skiptið.
Ástin lifði stutt hjá Cheryl í þetta skiptið. Mynd/Getty
Cheryl og Jean-Bernard Fernandez-Versini eru núna formlega skilin. Þau voru gift í aðeins 19 mánuði en þau giftu sig eftir þriggja mánaða samband. Það var Cheryl sem sótti um skilnaðinn en hún sagði að Jean-Bernand hafi komið óafsakanlega fram við hana og það hafi orðið til þess að hún hafi grennst á óheilbrigðan hátt í kjölfarið. 

Um þessar mundir er Cheryl í sambandi við Liam Payne sem var í strákahljómsveitinni One Direction. Talið er að hún sé ólétt eftir hann en hún hefur ekki enn staðfest sögusagnirnar. 


Tengdar fréttir

Cheryl sögð vera ólétt

Sögusagnir um að hún og Liam Payne eigi von á sínu fyrsta barni eru orðnar ansi háværar.






×