Lífið

Cher aflýsir tónleikum

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Cher aflýsti tónleikum vegna eyrnasýkingar.
Cher aflýsti tónleikum vegna eyrnasýkingar. GETTY
Söngkonan Cher hefur neyðst til að aflýsa þeim tónleikum sem eftir eru af tónleikaferðalaginu Dressed to Kill.

Samtals hefur Cher þurft að aflýsa 29 tónleikum á tónleikaferðalaginu, en þeim fyrstu aflýsti hún í byrjun september vegna vírussýkingar.

Vonir stóðu til að Cher gæti klárað tónleikaferðalagið eftir að hafa tekið sér stutt frí en tilkynnt var í gær að vegna slæmrar eyrnasýkingar neyddist söngkonan til að aflýsa restinni af tónleikaferðalagi sínu.

Cher var skiljanlega miður sín yfir að þurfa að aflýsa tónleikunum og setti tilkynningu á samskiptamiðilinn Twitter þar sem hún bað aðdáendur sína afsökunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×